Góða nótt. Hvað viltu vita um íslenska fótboltann?

Leikmenn

Lið og mót

Mót og stöður

Spurðu um það sem ksi.is getur ekki svarað.

Á ksi.is sérðu einn leik í einu. Til að finna alla sem hafa skorað sex mörk í leik þyrftirðu að opna tugþúsundir leikskýrslna. stig.is les þær allar í einu.

  1. Þú spyrð

    Á íslensku, eins og þú myndir spyrja sessunautinn í stúkunni.

  2. stig.is les allar leikskýrslurnar

    Í afriti af öllum gögnum KSÍ, í einni fyrirspurn, og sækir nýjustu úrslitin beint þegar þau skipta máli.

  3. Þú færð svar

    Með töflu þegar hún á við, og uppflettingunum að baki svo þú getir sannreynt.

Hvaða leikmenn hafa skorað meira en 5 mörk í einum leik?

Keyrði fyrirspurn á gagnagrunn KSÍSELECT p.name, t.name AS team, m.home_goals, m.away_goals, m.season_year, a.goals FROM outdoor_appearances a JOIN matches m ON m.id = a.match_id JOIN players p ON p.id = a.player_id JOIN teams t ON t.id = a.team_id WHERE a.goals > 5 AND a.category = 'Fullorðnir' ORDER BY a.goals DESC, m.date

Það hefur gerst 114 sinnum í meistaraflokki, hjá 92 leikmönnum, samkvæmt leikskýrslum. Metið er 10 mörk í leik og hefur verið jafnað þrisvar; Samúel Arnar Kjartansson hjá Ými á tvö þeirra.

LeikmaðurLeikurÁrMörk
Bryndís JóhannesdóttirKFR/Ægir 1–14 ÍR200610
Viktor Smári SegattaSnæfell 0–31 Haukar201210
Samúel Arnar KjartanssonÝmir 19–0 Kóngarnir201710
Samúel Arnar KjartanssonÝmir 21–0 Úlfarnir201810
Ásgerður Hildur IngibergsdóttirValur 23–0 Afturelding/Fjölnir20019
Raunverulegar tölur úr leikskýrslum KSÍ, leikir utanhúss.

Frá fyrsta Íslandsmótinu 1912 til leiks gærkvöldsins.

leikir með úrslitum
49.700
mörk
207.000
leikmenn
22.900
félög
682

Meistaraflokkar og eldri flokkar, félagslið og landslið, námundað niður í september 2026. Gögnin eru uppfærð á hverri nóttu og nýjustu úrslit sótt beint til KSÍ þegar spurt er um þau.

Gott að vita

Ein spurning án innskráningar

Prófaðu án aðgangs. Skráðu þig inn til að spyrja áfram og hafa spjöllin á öllum tækjunum þínum.

Hvað nær það langt aftur?

Úrslit ná aftur til 1912. Leikskýrslur með markaskorurum og byrjunarliðum hefjast 1985 og eru nær heilar frá miðjum tíunda áratugnum. Svörin segja frá því þegar eldri gögn vantar.

Hvaðan koma gögnin?

Úr opnu kerfi KSÍ. stig.is er ekki á vegum KSÍ; ef tala skiptir máli, sannreyndu hana á ksi.is.