Persónuverndarstefna
Síðast uppfært 3. nóvember 2026.
Þessi stefna lýsir því hvaða persónuupplýsingar Vestra AI ehf. („við“) vinnur þegar þú notar vefinn stig.is, í hvaða tilgangi, hverjir koma að vinnslunni og hver réttindi þín eru samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR).
1. Ábyrgðaraðili
Vestra AI ehf., kt. 570125-0360, Bolholt 8, 105 Reykjavík, er ábyrgðaraðili vinnslunnar.
Fyrirspurnir má senda á vestra@vestra.is.
2. Hvaða upplýsingar við vinnum
- Skilaboð og svör. Það sem þú skrifar í spjallið, svörin sem þú færð og gögn sem eru sótt til að svara (t.d. um leikmenn og leiki). Spjöllin eru geymd svo þú getir haldið samtali áfram.
- Ábendingar um svör. Gefir þú svari þumal upp eða niður geymum við það með spjallinu, ásamt ástæðunni sem þú velur og því sem þú skrifar um hvað sé rétt. Við notum ábendingarnar til að prófa og bæta svörin, og þeim er eytt með spjallinu.
- Deild svör. Velji innskráður notandi að deila svari birtum við afrit af þeirri einu spurningu og svari, ásamt gögnunum að baki, á opinberri síðu sem hver sem er með hlekkinn getur lesið. Hann sér afritið fyrst, og hvorki nafn hans né annað úr spjallinu fylgir. Við teljum skoðanir síðunnar án þess að skrá hver skoðar. Leitarvélar fá aðeins að skrá síðuna ef notandinn leyfir það sérstaklega og aldrei ef þar er nefnt barn. Notandi getur hætt að deila svari hvenær sem er.
- Nafnlaust vafraauðkenni. Notir þú þjónustuna án innskráningar geymir vafrinn þinn slembið auðkenni (í „localStorage“ og í nauðsynlegri, undirritaðri vafraköku) sem tengir spjöllin við vafrann. Það inniheldur engar upplýsingar um þig, er endurnýjað þegar þú skráir þig inn eða út og eyðist þegar þú hreinsar vafragögn. IP-tala er aðeins notuð í minni, til að takmarka hve oft ný auðkenni eru gefin út, og er ekki vistuð.
- Aðgangsupplýsingar. Skráir þú þig inn fáum við nafn, netfang og prófílmynd frá innskráningarþjónustunni Clerk, auk einkvæms notandaauðkennis.
- Tæknilegar upplýsingar. Hýsingaraðilar skrá venjubundnar aðgangsupplýsingar á borð við IP-tölu, tegund vafra og tímasetningar til að reka þjónustuna og verjast misnotkun.
- Rekstrarmælingar. Við skráum hvernig hverju svari reiðir af (t.d. hve lengi það tók, hvað það kostaði og hvort það mistókst) og talningar á notkun (t.d. að spurning hafi verið spurð og um hvaða efnisflokk), tengdar við óafturkræft tætigildi auðkennis þíns en aldrei innihald skilaboða. Villur sem verða í vafranum eru skráðar án persónuupplýsinga.
- Gæðaeftirlit. Þegar svar mistekst, gagnafyrirspurn bakvið það bregst eða svar er merkt rangt geymum við spurninguna, svarið og fyrirspurnirnar sem lágu að baki, án auðkennis þíns og með netföngum og kennitölum fjarlægðum, svo við getum yfirfarið svarið og bætt þjónustuna.
- Stillingar. Val á útliti (ljóst/dökkt) er geymt í vafranum þínum.
3. Tilgangur og lagagrundvöllur
- Að veita þjónustuna: svara spurningum, geyma og birta spjallsögu, stinga upp á framhaldsspurningum og gefa spjöllum titla (samningur/lögmætir hagsmunir).
- Að takmarka nafnlausa notkun og verjast misnotkun (lögmætir hagsmunir).
- Að reka og bæta þjónustuna, þar á meðal að leita orsaka villna (lögmætir hagsmunir).
Við notum upplýsingarnar ekki til markaðssetningar og seljum þær aldrei.
4. Vinnsluaðilar og viðtakendur
Til að veita þjónustuna nýtum við eftirfarandi aðila sem vinna upplýsingar fyrir okkar hönd:
- Anthropic – gervigreindarlíkanið (Claude) sem býr til svör, titla á spjöll og tillögur að framhaldsspurningum. Skilaboðin þín, nýleg spjallsaga og gögnin sem sótt eru til að svara eru send þangað til vinnslu. Samkvæmt viðskiptaskilmálum Anthropic eru gögn sem berast um forritaskil ekki notuð til að þjálfa líkön og þau eru aðeins geymd í takmarkaðan tíma.
- Convex – gagnagrunnur og bakendi þar sem spjöll, skilaboð, notkunartalningar, skyndiminni og rannsóknarverkefni eru geymd.
- Clerk – innskráning og aðgangsstýring; geymir nafn, netfang og prófílmynd þeirra sem skrá sig inn.
- Neon – Postgres-gagnagrunnur með afriti af opinberum gögnum KSÍ. Fyrirspurnirnar sem líkanið skrifar til að svara þér eru keyrðar þar; þær geta endurspeglað orðalag spurningarinnar en eru ekki tengdar þér eða aðganginum þínum.
- Vercel – hýsing vefsins og nafnlaus notkunartölfræði (Vercel Web Analytics) sem notar hvorki vafrakökur né auðkennir þig.
- KSÍ (ksi.is) – opið kerfi KSÍ sem gögn um leiki, leikmenn, mót og félög eru sótt úr. Þangað eru ekki sendar persónuupplýsingar um þig.
Sumir þessara aðila eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Flutningur byggir á viðurkenndum ráðstöfunum á borð við stöðluð samningsákvæði ESB.
5. Gögn um leikmenn
Til að svara spurningum um íslenskan fótbolta vinnum við upplýsingar um leikmenn, þjálfara, dómara og aðra sem koma fram í gögnum KSÍ. Þær fáum við ekki frá fólkinu sjálfu og því greinum við hér frá vinnslunni (14. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar).
- Uppruni. Opinberar leikskýrslur og aðrar upplýsingar sem Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) birtir á ksi.is og í opnu kerfi sínu.
- Hvaða upplýsingar. Nafn, félag og lið, þátttaka í leikjum (byrjunarlið, innáskiptingar og mínútur), mörk, spjöld og hlutverk dómara, auk fæðingardags og þjóðernis þegar KSÍ birtir það.
- Tilgangur. Að svara spurningum notenda um leiki, mót, félög og tölfræði í íslenskum fótbolta.
- Lagagrundvöllur. Lögmætir hagsmunir (f-liður 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar): áhugi almennings á íþróttum og tölfræði þeirra, um upplýsingar sem KSÍ hefur þegar birt opinberlega. Við tökum engar sjálfvirkar ákvarðanir um fólk út frá þeim.
- Viðtakendur og varðveisla. Afrit af gögnunum er geymt hjá Neon og Convex, uppfært frá KSÍ á hverri nóttu og geymt meðan þjónustan er rekin. Þegar gögnin eiga við spurningu eru þau send gervigreindarlíkaninu (sjá 4. lið) og svarið birtist þeim sem spurði.
- Börn og ungmenni. Leikmenn yngri en 18 ára spila í meistaraflokki og koma því fyrir í gögnunum. Við sýnum aðeins það sem KSÍ birtir sjálft og verðum við andmælum þeirra og forráðamanna þeirra.
- Andmæli og leiðrétting. Þú getur andmælt vinnslu upplýsinga um þig, eða forráðamaður fyrir þína hönd, með pósti á vestra@vestra.is. Við verðum við andmælum og hættum að birta upplýsingar um viðkomandi í svörum. Rangar upplýsingar koma frá KSÍ; við leiðréttum afritið og bendum á KSÍ til að leiðrétta upprunann.
6. Varðveisla
- Spjöll innskráðra notenda eru geymd þar til þú eyðir þeim eða aðganginum. Þegar aðgangi er eytt eyðum við sjálfkrafa öllum spjöllum hans, skilaboðum og tengdum gögnum (kostnaðartölum, tillögum að framhaldsspurningum, rannsóknarverkefnum, gæðaeftirlitsgögnum og notkunartalningum).
- Nafnlausum spjöllum er eytt sjálfkrafa þegar 60 dagar hafa liðið án virkni, og talningu nafnlausra skilaboða sömuleiðis.
- Þegar þú skráir þig inn færast aðeins nafnlaus spjöll sem notuð voru síðustu 24 klukkustundir, auk spjallsins sem er opið, yfir á aðganginn. Eftir það, og þegar þú skráir þig út, fær vafrinn nýtt auðkenni, svo næsti notandi sama vafra sér ekki eldri spjöll.
- Talningu á fjölda spurninga á dag er eytt eftir 60 daga.
- Deildum svörum er eytt þegar notandinn hættir að deila þeim, eða þegar spjallinu eða aðganginum er eytt. Einstaklingur sem andmælir birtingu (sjá 5. lið) hverfur líka úr deildum svörum.
- Atvikaskrár okkar geyma hvorki efni skilaboða, titla spjalla né fyrirspurnirnar sem líkanið skrifar.
- Afrit og skyndiminni um leikmenn og mót innihalda opinber gögn KSÍ og eru endurnýjuð reglulega (sjá 5. lið).
- Rekstrarmælingar eru geymdar í allt að 400 daga og villuskráning í 90 daga.
- Spurningum og svörum sem tekin eru til gæðaeftirlits er eytt eftir 90 daga, eða fyrr ef spjallinu er eytt.
- Aðgangsskrár hýsingaraðila eru geymdar í takmarkaðan tíma samkvæmt þeirra stefnu.
7. Vafrakökur og geymsla í vafra
Við notum aðeins nauðsynlega geymslu: vafraauðkenni fyrir nafnlaus spjöll (í localStorage og vafrakökunni „stig_anon“), innskráningarlotu Clerk, útlitsstillingu, hvort hliðarstikan er opin og tungumálastillingu ef þú velur hana. Engar auglýsinga- eða greiningarkökur eru notaðar; notkunartölfræðin er vafrakökulaus og því er ekki þörf á samþykki fyrir vafrakökum.
8. Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu, flutningi gagna og að andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum. Spjöllum getur þú eytt sjálf/ur í þjónustunni; öðrum beiðnum, þar á meðal um eyðingu aðgangs, má beina til okkar (sjá 1. lið). Þú getur einnig lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd (personuvernd.is).
9. Börn
Þjónustan er ekki ætluð börnum yngri en 13 ára og við söfnum ekki vísvitandi upplýsingum um þau sem notendur. Um leikmenn undir 18 ára í gögnum KSÍ, sjá 5. lið.
10. Breytingar
Við kunnum að uppfæra þessa stefnu. Gildandi útgáfa er alltaf birt á þessari síðu með dagsetningu.